Sigur Rós Hjartað hamast (bamm bamm bamm)

Hjartað hamast eins og alltaf
en nú úr takt við tímann
týndur og gleymdur heima hjá mér
alveg að springa í gegnum nefið
sný upp á sveitta sængina
stari á ryðið sem vex á mér
étur sig inní skelina
stend upp mig svimar
Það molnar af mér
ég fer um á fótum
geng fram hjá mér
klæði mig nakinn
og fer svo úr
vakinn
en sofinn
sef ekki dúr
hjartað stoppar
hreyfist ekki
kem gangráð fyrir
sem ég kingi og fel
finn startkapal
og kveiki í mér
sé allt tvöfalt
tvöfalt svart
kerfisbilun
heilinn neitar
held áfram að leita
óstjórnandi upplýsingar
Þarf aftur að mata
mata mig
tala upphátt
og ferðast inni í mér leita
ég leita af lífi um stund
ég stóð í stað með von að vin
ég vinn upp smá tíma
leita að ágætis byrjun
en verð að vonbrigðum.